Velkomin á vefsíðu

Hollvinasamtaka SAK

Við styðjum og styrkjum starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri

Fréttir

Eftir Hilda Jana Gísladóttir 4. maí 2026
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) hefur tekið í notkun nýtt Hemoscreen nærrannsóknartæki á bráðamóttöku. Tækið er gjöf frá Hollvinum SAk og markar mikilvægt skref í að efla hraða og gæði þjónustu við sjúklinga. N ærrannsóknir (e. Point of Care Testing, POCT) eru rannsóknir sem framkvæmdar eru nálægt sjúklingi, utan hefðbundinnar rannsóknarstofu. Með slíkum búnaði er hægt að styðja við hraðari greiningu og ákvarðanatöku í meðferð, sem getur skipt sköpum í bráðum aðstæðum. „Markmið nærrannsókna er að styðja við hraðari og markvissari klínískar ákvarðanir, án þess að skerða gæði eða rekjanleika rannsóknaniðurstaðna,“ segir Inga Stella Pétursdóttir, deildarstjóri Rannsóknadeildar SAk. Hemoscreen-tækið bætir aðgengi að nútímalegum rannsóknum beint á vettvangi og styður þannig við skilvirkara verklag á bráðamóttöku. Niðurstöður úr mælingum skrást rafrænt í rannsóknakerfi sjúkrahússins, líkt og aðrar rannsóknaniðurstöður, sem tryggir öryggi, rekjanleika og samfellu í meðferð sjúklinga. „Tækið er mikilvæg viðbót við þá þróun sem hefur átt sér stað í innleiðingu nærrannsókna á SAk. Gjöf Hollvina skiptir hér miklu máli og gerir okkur kleift að efla þjónustuna enn frekar,“ segir Inga Stella. Kristín Ósk Ragnarsdóttir, deildarstjóri bráðamóttöku SAk, segir tækið hafa jákvæð áhrif á daglegt starf deildarinnar: „Á bráðamóttöku skiptir tíminn miklu máli og það að geta fengið niðurstöður hratt, beint við rúm sjúklings, styður við betri og öruggari ákvarðanatöku. Þetta tæki er því mjög dýrmæt viðbót við okkar starfsemi.“ Að sögn Jóhannesar G. Bjarnasonar, formanns Hollvinasamtaka SAk, er það sérstakt ánægjuefni að geta lagt sitt af mörkum til þróunar þjónustunnar: „Það er okkur hjá Hollvinum mjög mikilvægt að styðja við starfsemi sjúkrahússins. Með þessari gjöf viljum við leggja okkar af mörkum til að efla aðstöðu og bæta þjónustu við sjúklinga.“ Á undanförnum árum hefur SAk byggt upp öflugt kerfi nærrannsókna með nokkrum tækjum sem tengjast rannsóknakerfi sjúkrahússins. Með tilkomu Hemoscreen er það kerfi styrkt enn frekar, sérstaklega í bráðaþjónustu þar sem tími skiptir miklu máli. Notkun tækisins er háð sérhæfðri þjálfun starfsfólks og fer öll starfsemi samkvæmt ströngum gæðakröfum undir faglegri yfirstjórn Rannsóknadeildar SAk. Gjöf Hollvina SAk er mikilvægt framlag til heilbrigðisþjónustu á Norðurlandi og styður við áframhaldandi þróun sjúkrahússins í takt við nútímakröfur. Hægt er að gerast Hollvinur með því að skrá sig hér: Gerast Hollvinur Árlegt styrktar- og árgjald er 6.000 kr.
Eftir Hilda Jana Gísladóttir 22. apríl 2026
Hollvinasamtök Sjúkrahússins á Akureyri hafa nýverið afhent sjúkrahúsinu tíu svokallaðar CADD-lyfjadælur. Um er að ræða litlar, rafknúnar dælur sem notaðar eru til að gefa sjúklingum lyf stöðugt eða eftir þörfum yfir ákveðinn tíma. Þær eru einkum nýttar í verkjameðferð og í líknarmeðferð, þar sem þörf er á nákvæmri og samfelldri lyfjagjöf. „Þetta eru mjög mikilvægar gjafir, sér í lagi þar sem þær dælur sem eru til á SAk eru orðnar barn síns tíma og fáar eftir sem hægt er að nota,“ segir Rebekka Héðinsdóttir, deildarstjóri á lyflækningadeild. Hollvinasamtök SAk hafa um árabil stutt við starfsemi sjúkrahússins með margvíslegum hætti og lagt sitt af mörkum til að efla þjónustu og aðbúnað sjúklinga. „Það er okkur í Hollvinasamtökunum mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra,“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina . „Við vitum að þessi búnaður getur haft raunveruleg áhrif á líðan fólks á erfiðum tímum og erum stolt af því að styðja við starfsemi sjúkrahússins með þessum hætti.“ Þá má benda á að sendir hafa verið út greiðsluseðlar fyrir Hollvini með eindaga 1. maí. Árlegt styrktar- og árgjald er 6.000 kr. Hægt er að gerast Hollvinur með því að skrá sig hér: Gerast Hollvinur Á myndinni eru fulltrúar Hollvina og deildarstjóri og aðstoðardeildarstjórar lyflækningadeildar. Frá vinstri: Inga Margrét Árnadóttir, Jóhannes Gunnar Bjarnason, Kristín Sigfúsdóttir, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Heiða Berglind Magnúsdóttir, Hermann Haraldsson, Rebekka Héðinsdóttir, Bjarni Jónasson og Ragnheiður Birna Guðnadóttir.
Sýna fleiri

Um okkur

Markmið Hollvina Sjúkrahússins á Akureyri er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins.


Hafðu samband

Viltu vita meira? Ekki hika við að hafa samband.

Contact Us

Hægt er að kaupa minningarkort til að styrkja Hollvini