Velkomin á vefsíðu

Hollvinasamtaka SAK

Við styðjum og styrkjum starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri

Fréttir

Eftir Hilda Jana Gísladóttir 22. júní 2026
Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuðum síðar fæddist barnabarn hennar og nafna, Sólveig Hulda Egilsdóttir, þann 15. maí 2026 en hún kvaddi eftir aðeins einn dag í þessum heimi. Til að heiðra minningu hennar hafa aðstandendur stofnað hlaupahóp og söfnun styrkja til að safna fyrir Hollvinasamtök SAk í Reykjavíkurmaraþoninu. Sólveig Hulda eldri starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bar hag spítalans og fólksins þar fyrir brjósti. Aðstandendur segja: „Hún studdi Hollvinasamtökin af heilum hug og því finnst okkur sérstaklega viðeigandi að láta söfnunina renna til þeirra. Með þessari söfnun viljum við láta eitthvað fallegt leiða af okkur í þessari ólýsanlegu sorg. Við viljum heiðra minningu tveggja dýrmætra Sólveigar sem skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur. Hver stuðningur skiptir máli og hjálpar okkur að halda minningu þeirra á lofti.“ Til þess að sameina hlaupara enn frekar á þessum stóra degi, hvort sem fólk ætlar að hlaupa, standa á hliðarlínunni og hvetja eða einfaldlega sýna stuðning, hafa aðstandendur Sólveigar látið útbúa bol sem hægt er að kaupa frá Craft. Ef þú hefur áhuga á að eignast bol þá getur þú pantað hann hér: SÓLVEIG HULDA - Hlaupabolur - allar stærðir – CRAFT Stjórn Hollvina SAk hvetja alla sem tök hafa á til þess að hlaupa í þeirra nafni og taka þátt í söfnuninni „Við í stjórn Hollvina SAk munum ekki láta okkar eftir liggja, við ætlum að vera með stuðningsstöð og hvetja hlaupara til dáða. Á sama tíma viljum við senda okkar kærleika til allra þeirra sem eiga um sárt að binda við þennan ólýsanlega og óskiljanlega missi.“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtaka SAk. Nánari upplýsingar og áheit má finna hér: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Eftir Hilda Jana Gísladóttir 16. júní 2026
Hollvinir Sjúkrahússins á Akureyri hafa gefið gjörgæslu- og lyflækningadeild sjúkrahússins tíu nýjar BiPAP-öndunarvélar sem munu efla verulega getu SAk til að veita sjúklingum með öndunarfærabilun nauðsynlegan öndunarstuðning. Að sögn Brynju Drafnar Tryggvadóttur, deildarstjóra gjörgæsludeildar, er með vélunum hægt að bjóða upp á fjölþætta meðferð fyrir fólk með ýmiss konar öndunarfærabilanir. „Þetta eru öndunarvélar sem veita ytri öndunarstuðning og bjóða upp á fjölþætta meðferð, allt frá háflæði súrefnismeðferð yfir í öndunarstuðning með þrýstingi sem hjálpar fólki að draga andann. Vélarnar hafa einnig þann valmöguleika að nýtast sem varaöndunarvélar fyrir alvarlega veika sjúklinga sem eru sofandi í öndunarvél. Það tryggir að við eigum ávallt nægilega margar vélar til að veita nauðsynlegan stuðning,“ segir Brynja. Hún bendir á að gjöfin marki mikilvæg tímamót fyrir SAk. Fyrir voru fimm BiPAP-vélar sem höfðu verið mikið notaðar í gegnum árin og voru orðnar bæði gamlar og úr sér gengnar. „Þær voru ekki nægilega margar og stundum höfum við þurft að forgangsraða notkun þeirra. Nýju vélarnar aðlagast betur þörfum hvers einstaklings og endurspegla nýjustu þróun á þessu sviði,“ segir hún. Brynja segir stuðning Hollvina skipta sjúkrahúsið miklu máli. „Það er ómetanlegt fyrir okkur sem stofnun að fá gjafir og styrki líkt og Hollvinir veita okkur, enda skiptir það miklu máli að finna stuðning samfélagsins við starfsemi SAk. En fyrst og fremst er þetta auðvitað ómetanlegt fyrir sjúklingana okkar, því með þessum búnaði getum við veitt þeim bestu mögulegu þjónustu.“ Gjafirnar verða ekki að veruleika nema með stuðningi félagsmanna Jóhannes G. Bjarnason, formaður stjórnar Hollvina SAk, segir gjöfina vera afrakstur stuðnings þeirra fjölmörgu einstaklinga sem standa að baki starfsemi félagsins. „Án félagsmanna okkar gætum við ekki staðið að verkefnum sem þessum. Í kringum 2.300 einstaklingar hafa greitt árgjaldið á þessu ári og fyrir þann stuðning erum við afar þakklát.“ Jóhannes hvetur jafnframt fleiri til að ganga til liðs við Hollvinasamtökin: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri Hollvini. Með því að greiða árgjaldið eða skrá sig í samtökin tekur fólk beinan þátt í að efla þjónustu Sjúkrahússins á Akureyri og stuðla að því að sjúklingar fái sem besta umönnun og aðbúnað.“ Hægt er að gerast Hollvinur með því að skrá sig hér: Gerast Hollvinur Árlegt styrktar- og árgjald er 6.000 kr.
Sýna fleiri

Um okkur

Markmið Hollvina Sjúkrahússins á Akureyri er að styðja og styrkja starfsemi sjúkrahússins.


Hafðu samband

Viltu vita meira? Ekki hika við að hafa samband.

Contact Us

Hægt er að kaupa minningarkort til að styrkja Hollvini