Reykjavíkurmaraþon: Til minningar um Sólveigu Huldu🧡
Sólveig Hulda, móðir, eiginkona, amma, vinkona og samstarfskona, lést skyndilega 22. febrúar 2026. Aðeins þremur mánuðum síðar fæddist barnabarn hennar og nafna, Sólveig Hulda Egilsdóttir, þann 15. maí 2026 en hún kvaddi eftir aðeins einn dag í þessum heimi.
Til að heiðra minningu hennar hafa aðstandendur stofnað hlaupahóp og söfnun styrkja til að safna fyrir Hollvinasamtök SAk í Reykjavíkurmaraþoninu. Sólveig Hulda eldri starfaði á Sjúkrahúsinu á Akureyri og bar hag spítalans og fólksins þar fyrir brjósti. Aðstandendur segja: „Hún studdi Hollvinasamtökin af heilum hug og því finnst okkur sérstaklega viðeigandi að láta söfnunina renna til þeirra. Með þessari söfnun viljum við láta eitthvað fallegt leiða af okkur í þessari ólýsanlegu sorg. Við viljum heiðra minningu tveggja dýrmætra Sólveigar sem skildu eftir sig meira ljós, meiri ást og meiri áhrif en orð fá lýst. Takk fyrir að hlaupa með okkur, styrkja málefnið eða minnast þeirra með okkur. Hver stuðningur skiptir máli og hjálpar okkur að halda minningu þeirra á lofti.“
Til þess að sameina hlaupara enn frekar á þessum stóra degi, hvort sem fólk ætlar að hlaupa, standa á hliðarlínunni og hvetja eða einfaldlega sýna stuðning, hafa aðstandendur Sólveigar látið útbúa bol sem hægt er að kaupa frá Craft. Ef þú hefur áhuga á að eignast bol þá getur þú pantað hann hér: SÓLVEIG HULDA - Hlaupabolur - allar stærðir – CRAFT
Stjórn Hollvina SAk hvetja alla sem tök hafa á til þess að hlaupa í þeirra nafni og taka þátt í söfnuninni „Við í stjórn Hollvina SAk munum ekki láta okkar eftir liggja, við ætlum að vera með stuðningsstöð og hvetja hlaupara til dáða. Á sama tíma viljum við senda okkar kærleika til allra þeirra sem eiga um sárt að binda við þennan ólýsanlega og óskiljanlega missi.“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason, formaður stjórnar Hollvinasamtaka SAk.
Nánari upplýsingar og áheit má finna hér: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Fleiri fréttir

















